Nýja brúin verður hluti af Hringveginum. Þessar brúarframkvæmdir hafa verið nokkuð umdeildar og ekki allir sem sjá hvernig hagur allra bætist með nýrri brú sem greiðir verulega fyrir umferðarþunga, sem hefur farið sívaxandi síðustu ár. Nafnið bendir til að Hringbrúin sé eign allra Íslendinga. Hringurinn tengir okkur og sameinar. Þetta verður merkasta brú Íslendinga, ekki bara Árborgar.

Ferðamenn munu eiga auðvelt með að muna og bera fram nafnið á Hringbrúnni sbr. Hringvegurinn er kallaður The Ring Road og brúin verður The Ring Bridge. Með vandaðri markaðssetningu er hægt að stimpla Hringbrúna inn sem upphafspunkt ferðalagsins og hliðið að Hringveginum.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation