Ef þú hugsar um ofangreind atriði, hverjar ættu helstu áherslur bæjarins að vera?
Mér finnst vanta aðeins kjöt á beinin varðandi ljósmengun. Við getum haft góða lýsingu sem við stýrum miðað við notkun á svæðum. LED væðingin er góð. Er t.d. búið að skipta út öllum kvikasilfursperunum sem voru í notkun í eldri hverfum og voru bannaðar víst á síðustu öld. Er t.d. hægt að helminga lýsingu yfir nótt á ákveðnum svæðum eins og t.d. skólalóðum og öðrum opinberum svæðum, sem væri kannski með hreyfistýringu.
Hljóðmengun - það mætti endurskoða staðsetningu á aksturs-íþróttabrautum við Krísuvíkurveg þar sem hverfið hefur stækkað mikið og ónæði getur verið af þessu svæði sem berst mjög vel yfir Hamranes og Vallahverfið. Sama má segja um skotæfingasvæðið. Það væri áhugvert að gera könnun á hljóðmengun yfir sumartímann.
Kolefnisjöfnunarleiðir fyrir sveitafélagið eins og t.d. endurheimt votlendis í landi bæjarins þar sem tækifæri er til slíks. Bæta almenningssamgöngur í bænum, Innleiða grænfánaverkefni í alla skóla og leikskóla, hvetja til heimavinnu starfsmanna, þar sem því verður við komið, 1x í viku a.m.k. til að draga úr akstri einkabifreiða. Minnka neyslu - mikilvægt að halda áfram vinnu með sjálfbærni og innleiða líka til íbúa með fræðslu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation